Mikil aukning á hjólreiðum í Reykjavík 17. febrúar 2012 14:06 Hjólreiðar,.
Mikil aukning hefur orðið á hjólreiðum í Reykjavík samkvæmt nýrri og viðamikilli ferðavenjukönnun sem gerð hefur verið fyrir höfuðborgarsvæðið. 3,8% aðspurðra fara allra ferða sinna á reiðhjóli, en aðeins 0,8 % svöruðu á þennan veg árið 2002 þegar sambærileg könnun var gerð. Talan hækkar í 4,6% ef aðeins svör Reykvíkinga eru skoðuð. Flestar ferðir voru farnar á reiðhjóli í Miðborginni, Vesturbæ, Laugardal og Árbæ eða 6-7%. 61% aðspurðra segjast hjóla allt árið um kring eða hluta úr ári, en 39% aldrei. Ýmsar ástæður skýra þessa breytingu. Nefna má fjölgun reiðhjólastíga í borginni og bættar aðstæður fyrir hjólreiðar, hátt eldsneytisverð, áhyggjur fólks af gróðurhúsaáhrifum bílasamgangna og áhuga á breyttum borgarbrag, vistvænum samgöngum og heilsusamlegu líferni. Reykjavíkurborg hefur unnið jafnt og þétt að því að fjölga göngu- og hjólastígum um borgina. Árið 1980 voru göngu- og hjólastígar með bundnu slitlagi 269 km, árið 2002 650 km og 768 km í fyrra. Það hefur því orðið bylting í lagningu göngu- og hjólreiðastíga sem gera íbúum og gestum kleift að ferðast hjólandi eða gangandi um borgina á öruggan og vistvænan máta. Víða eru göngubrýr eða undirgöng undir umferðaræðar og stígar eru lagðir um vinsælar útivistarperlur eins og Elliðaárdalinn og Ægissíðu. Göngu- og hjólreiðastígar hafa einnig verið aðskildir til að greiða fyrir umferð gangandi og hjólandi vegfarenda, m.a. í Fossvogi og við Ægisíðu. Nú er verið að vinna að mikilvægum tengingum hjólastíga, t.d. með brúm yfir Elliðaárósa sem munu bæta og stytta hjóla- og gönguleiðir. Könnunin var unnin af Capacent-Gallup fyrir öll sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu og Vegagerðina og fór gagnaöflun fram frá 26. október til 6. desember 2011.Í úrtaki voru 10.140 og var svarhlutfall tæplega 35%.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Sjá meira