Biður fólk um að sýna þolinmæði vegna dóms Hæstaréttar 17. febrúar 2012 19:30
Efnahags- og viðskiptaráðherra segir svigrúm bankanna til afskrifta ekki vera meira þrátt fyrir að þeir geti tekið á sig tug milljarða tjón vegna gengistryggðra lána. Það sé algjörlega óskylt almennri niðurfærslu lána. Forsætisráðherra segir fólk þurfa að sýna þolinmæði. Hagfræðistofnun Háskóla Íslands kynnti í lok janúar skýrslu um að svigrúm til að afskrifa húsnæðislán almennings væri ekki lengur fyrir hendi. Nú eftir dóm Hæstaréttar um gengistryggð lán er hins vegar fullyrt að bankarnir standi nægilega sterkir til að taka á sig jafnvel tug milljarða tjón vegna endurútreikninga, þetta kann að rugla marga. „Það er eðlilegt að svona sé spurt en þá er mjög mikilvægt að hafa á hreinu um hvað var verið að tala. Hagfræðistofnun var að reyna að meta hvaða svigrúm bankanna í skilningi þess afsláttar sem þeir fengu á flutningi lánasafnisins úr gömlu bönkunum í nýju í tilviki heimila væri uppurið og niðurstaðan var sú," sagði Steingrímur J. Sigfússon. Þar með hafi niðurfærslur lána til einstaklinga, sem eru hátt í 200 milljarðar króna, byggt á afslætti milli gömlu og nýju bankanna verið fullnýttar. „Það sem við erum að tala um núna er hins vegar það að efnahagslegur styrkur bankanna gera það að verkum að þeir geta tekið þetta á sig og þeir eiga að gera það að því marki sem að fólk á rétt á þessum endurreikningi en þá er það allt annar hlutur." Ráðherrar ræddu dóm hæstaréttar á löngum ríkisstjórnarfundi í morgun, enn er óljóst hvert fordæmisgildi dómsins mun vera en forsætisráðherra segir málið vera hjá fjármálastofnunum. „Þetta er erfitt úrlausnarefni og hugsanlega verður það ekki leyst nema fyrir dómstólum aftur en auðvitað reynum við að leysa úr þessu eins og hægt er þannig að fólk þurfi ekki að bíða lengi um niðurstöðu en fólk verður samt að hafa þolinmæði að þeir þurfi að við vinnum þetta á vandaðan hátt sem er alveg nauðsynlegt," sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að keyra bókun 35 í gang Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Sjá meira