Réttað yfir fyrrverandi garðyrkjustjóra Orkuveitunnar 6. febrúar 2012 11:59
Aðalmeðferð stendur nú yfir í máli Kristins H. Þorsteinssonar, fyrrverandi garðyrkjustjóra hjá Orkuveitu Reykjavíkur, sem var ákærður af sérstökum saksóknara fyrir fjárdrátt. Ákæran á hendur Kristni var þingfest í byrjun janúar síðastliðnum en um er að ræða mál sem embætti sérstaks saksóknara fékk í arf frá efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra þegar embættin tvö sameinuðust í september á síðasta ári. Málið hefur verið í rannsókn í um þrjú ár, eða frá því Kristinn lét af störfum hjá Orkuveitunni í desember 2008 vegna útgáfu reikninga upp á samtals 10 milljónir króna til einkahlutafélags í sinni eigu. Í yfirlýsingu, sem Kristinn sendi frá sér þegar málið komi upp, sagði hann að reikningarnir, sem hann lét Orkuveituna greiða einkahlutafélagi sínu, væru til komnir vegna vinnu tveggja sona hans í íhlaupavinnu hjá Orkuveitunni og vegna verktakavinnu eiginkonu hans. Þá hafi hann fengið bróður sinni til að vinna einstök verkefni fyrir g skrifað upp á reikninga vegna þeirrar vinnu. Kristinn sagði að í öllum tilvikum hafi verið um að ræða eðlilega greiðslu fyrir þau störf sem unnin voru. Vinna konu hans, sona og bróður hafi verið unnin fyrir opnum tjöldum, á fjölmennum vinnustað og á engan hátt var farið í felur með tengsl þeirra innbyrðis. Orkuveitan virtist ekki sammála þessu því málið var kært til lögreglu sem rannsakaði hin meintu brot og gaf út ákæru í kjölfarið. Að lokinni aðalmeðferð í dag verður málið dómtekið en fjárdráttur getur varðað allt að sex ára fangelsi, samkvæmt almennum hegningarlögum.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sjá meira