Innlent

Lýsa eftir vinnuvél

Samskonar vinnuvél og var stolið.
Samskonar vinnuvél og var stolið.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir vinnuvél sem var stolið úr Kjalarvogi við Vogarbakka í Reykjavík sl. fimmtudagsmorgun.

Um er að ræða tæki af gerðinni JCB 540-70T með vinnuvélanúmerið JF-0349. Vinnuvélin var innan öryggishliðs Faxaflóahafna þegar þjófurinn lét til skarar skríða. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar tækið er niðurkomið eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 eða senda tölvupóst á netfangið abending@lrh.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×