Innlent

Verið að klára samninga vegna myndar Baltasars og Denzels

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Bandaríski stórleikarinn Denzel Washington, sem er tvöfaldur óskarsverðlaunahafi, hefur samþykkt að leika í nýjustu kvikmynd Baltasars Kormáks, 2 Guns.

2 Guns er framleidd af Marc Platt Productions sem hefur m.a gert kvikmyndirnar Drive og Wanted, sem skartaði Angelinu Jolie í aðallhlutverki.

Um er að ræða umtalsvert stærra verkefni en Contraband og er framleiðslukostnaður áætlaður 80 milljónir dollara, jafnvirði tæplega tíu milljarða króna.

Þetta er önnur myndin þar sem Baltasar leikstýrir Mark Wahlberg, en Contraband, fyrsta myndin sem þeir gerðu saman hefur átt mikilli velgengni að fagna og átti stærstu opnun á frumsýningarhelgi í sögu framleiðandans Working Title Films og hefur þegar halað inn jafnvirði um níu milljarða króna. Hún hefur þegar skilað nokkrum hagnaði, en upphaflegur framleiðsluskostnaður myndarinnar var 25 milljónir dollara, jafnvirði um þriggja milljarða króna.

2 Guns er eins og framan greinir ennþá stærra verkefni en Contraband og nú hefur bandaríski stórleikarinn Denzel Washington, tvöfaldur óskarsverðlaunahafi, samþykkt að leika í myndinni við hlið Wahlbergs.

„Þetta lítur mjög vel út, en ég er mikill aðdaándi, mér finnst hann frábær leikari. Það er verið að reka smiðshöggið á þetta og loka þessum samningum, þannig að þetta lítur vel út," segir Baltasar.

Washington fékk handritið að 2 Guns sent til sín og leist vel á. „Svo var Contraband „screenuð" sérstaklega fyrir hann, sér bíó fyrir hann, svo sagðist hann vilja hitta mig, en áður var búið að vinna í tilboðinu fyrir hann. Síðan áttum við fund, en ég fór út til Los Angeles og við áttum tveggja tíma fund. Hann stóð síðan upp eftir fundinn og sagðist vilja gera þetta með mér. Hann er helvíti svalur náungi og það var gaman að spjalla við hann," segir Baltasar.

2 Guns fjallar um fíkniefnalögreglumann og sjóliðsforingja sem fara huldu höfði þegar þeir rannsaka hvor annan í tengslum við þjófnað frá mafíunni og komast síðan að því að mafían hefur leitt þá í gildru. Baltasar segir að stefnt sé að því að tökur hefjist í júní næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×