Innlent

Áfengissala í janúar svipuð og 2006

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Áfengissala hefur dregist verulega saman síðustu þrjú árin. Hún er hins vegar svipuð og hún var 2006.
Áfengissala hefur dregist verulega saman síðustu þrjú árin. Hún er hins vegar svipuð og hún var 2006.
Sala á áfengi dróst saman um 2,3% í janúar síðastliðnum miðað við sama tímabil í fyrra. Alls seldust 1.074.000 lítrar í mánuðinum og er munurinn 25 þúsund lítrar. Samdráttur í sölu er talsvert meiri í bjór en léttvínum, eftir því sem fram kemur á vef Vínbúðanna. Þannig dróst sala á bjór saman um 3% á meðan sala á rauðvíni og hvítvíni dróst saman minna um minna en 1%. Ef litið er lengra aftur í tímann og salan í janúar í ár borin saman við söluna fyrir tveimur árum, þá seldust tæplega 8% færri lítrar af áfengi í ár. Salan nú er aftur á móti svipuð, í lítrum talið og hún var árið 2006,

Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri Vínbúðanna, segir enga skýringu vera á þessum samdrætti, en ljóst sé að verulegur samdráttur hafi verið í áfengissölu. Sé horft til sölu á ársgrundvelli sé ljóst að salan hafi dregist mikið saman undanfarin þrjú ár. Um 5% samdráttur hafi orðið á milli áranna 2009 - 2010. Samdráttur á milli áranna 2010-2011 hafi verið 2-3%. „Þannig að í raun og veru er þetta búið að vera að dragast mikið saman," segir Sigrún, en tekur jafnframt skýrt fram að það sé ekki markmið Vínbúðanna að selja sem mest. Tölurnar séu teknar saman til upplýsinga.

Þegar horft er á sölu áfengis í janúar á árunum 2006 til 2012 sést að salan er álíka mikil í ár og hún var árið 2006. Hún fór stigvaxandi til ársins 2009, en það ár voru seldar 1.284 þúsund lítrar áfengis. Síðan þá hefur salan minnkað jafnt og þétt og nú í janúar voru seldir um 200 þúsund færri lítrar en þá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×