Rauðir hundar greinast hér á landi 9. febrúar 2012 15:36
Á síðustu 1-2 vikum hafa tveir fullorðnir einstaklingar greinst með rauða hunda hér á landi. Í tilkynningu frá Landlækni segir að báðir hafi þeir verið með einkennandi sjúkdóm og höfðu ekki verið bólusettir sem börn eða unglingar. Annar einstaklinganna hafði líklega smitast erlendis. Landlæknir segir þó ekki ástæðu til þess að hefja fjöldabólusetningu unglinga eða fullorðinna gegn sjúkdómnum að svo stöddu. Sjúkdómurinn greindist síðast hér á landi árið 1992. Að sögn Landlæknis eru Rauðir hundar yfirleitt vægur sjúkdómur hjá heilbrigðu fólki en „getur valdið alvarlegum fósturskaða hjá þunguðum konum, einkum á fyrri hluta meðgöngu. Rauðir hundar greindust síðast á Íslandí árið 1992." Hér á landi hefur verið bólusett gegn rauðum hundum frá 1977 hjá konum á barneignaaldri sem ekki höfðu mótefni gegn veirunni en því fyrirkomulagi var hætt 2001. „Almenn bólusetning allra 18 mánaða barna hófst 1989 með notkun samsetts bóluefnis gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum (MMR). Endurbólusetning með þessu bóluefni hjá 9 ára börnum hófst síðan 1997, en árið 2001 var aldur endurbólusetningarinnar hækkaður í 12 ár." Í tilkynningu Landlæknis segir að greining rauðra hunda í dag minni á að bólusetningasjúkdómar geti stungið sér niður hér á landi hjá óbólusettum einstaklingum. „Þar sem búast má við að hér á landi sé stór hópur fullorðinna karlmanna sem hvorki hefur verið bólusettur gegn rauðum hundum né fengið sjúkdóminn er ekki ólíklegt að fleiri fullorðnir karlmenn muni greinast með sjúkdóminn á næstunni." Þá segir að ólíklegt sé að bólusett börn fái rauða hunda og sömuleiðis er talið ólíklegt að þungaðar konur smitist af rauðum hundum þar sem fylgst hefur verið með mótefnum allra unglingsstúlkna síðan 1977. „Þó að hér á landi hafi nú greinst rauðir hundar er engin ástæða til þess að hefja fjöldabólusetningu unglinga eða fullorðinna gegn sjúkdómnum að svo stöddu. Foreldrar eru hins vegar áfram hvattir til að láta bólusetja börn sín með þeim bóluefnum sem boðið er upp á í almennum bólusetningum."
Mest lesið „Við systkinin erum bara vinnandi fólk“ Innlent Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Erlent Gestafjöldi verður ekki takmarkaður við fimm þúsund Innlent Árásarmaðurinn á blótinu með langan brotaferil á bakinu Innlent „Hvaðan kom þetta fyrirbæri eiginlega hér inn á þing?“ Innlent Litir víkja fyrir nútímanum víðast hvar Innlent „Alltaf hætta á stigmögnun með þá utanríkisstefnu sem Rússland rekur“ Innlent Gaut ellefu íslenskum fjárhundum sem er heimsmet Innlent „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Erlent Málið verði flutt upp á nýtt með nýju vitni Innlent Fleiri fréttir „Alltaf hætta á stigmögnun með þá utanríkisstefnu sem Rússland rekur“ Gestafjöldi verður ekki takmarkaður við fimm þúsund Þurfi að útkljá hver er að misskilja hvern Gaut ellefu íslenskum fjárhundum sem er heimsmet „Við systkinin erum bara vinnandi fólk“ Litir víkja fyrir nútímanum víðast hvar Málið verði flutt upp á nýtt með nýju vitni Með Alzheimer en gæti beðið í fjögur ár Braut á ungri bróðurdóttur sinni sem bjó á heimilinu Nauðgari hélt því fram að Snapchat-skilaboð væru ekki frá honum Jón Gunnarsson biðst afsökunar á orðum sínum Borgin taki til sín fimmtung launahækkunar barnafólks Almannatryggingamálinu frestað en engar breytingar í farvatninu Ótrúlegt hve fáar virkjanir komist í gegnum rammaáætlun Tekur tímabundið við Framsóknarflokknum Hafnar því að strandað hafi á honum að bregðast við menguninni Rúta hafnaði utan vegar og valt Vísbendingar um að þúsund börn á Íslandi sæki ekki skóla Niðursveiflan á vinnumarkaði sé mjög djúp „Hvaðan kom þetta fyrirbæri eiginlega hér inn á þing?“ Landsvirkjun fagnar fleiri nýtingarkostum í rammaáætlun Refsað fyrir að loka á konu og keyra yfir fætur hennar Hræddur um að öfugur hvati leiði til fjölgunar öryrkja Ekki viss um að hægt sé að lappa upp á samband Evrópu og Bandaríkjanna Gengu tíu kílómetra til að geta óskað eftir aðstoð Maðurinn sem lýst var eftir fundinn Bein útsending: Umhverfið í hnattrænu samhengi Eigi að „brenna barnaverndarkerfið til grunna og byrja aftur“ Engin breyting þó veðmálakóngur sé einn eftir Árásarmaðurinn á blótinu með langan brotaferil á bakinu Sjá meira