Innlent

Vopnað rán í Árbæjarhverfi

Karl og kona frömdu rán á heimili í Árbæjarhverfi í gærkvöldi og er þeirra leitað.

Aðdragandinn var að húsráðandi bauð konu í heimsókn. Skömmu síðar virðist hún hafa hleypt inn manni, sem var vopnaður hnífi og hafði í hótunum við húsráðanda.

Lét fólkið greipar sópa um heimilið og hafði á brott með sér ýmsa muni og peninga af húsráðanda. Hann sakaði ekki, en kallaði strax á lögreglu, sem hefur málið nú til rannsóknar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×