Innlent

Lögðu hald á kristal MDMA

Fíkniefni fundust við húsleit í fjölbýlishúsi Árbæ fyrir helgina en um var að ræða rúmlega 60 grömm af amfetamíni, 50 grömm af marijúana, lítilræði af kókaíni og allnokkur grömm af kristal MDMA, en það síðastnefnda er sjaldséð hér á landi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Í íbúðinni var einnig fullkomin ræktunaraðstaða og búnaður sem var líka tekin í vörslu lögreglu.

Þrír karlar, tveir á þrítugsaldri og einn á fertugsaldri, voru handteknir vegna málsins. Fíkniefnaleitarhundur frá tollinum aðstoðaði við leitina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×