Hitt saltmálið: Fisksalt notað sem götusalt 31. janúar 2012 15:05 Götusalt eða fisksalt? Það er nú stóra spurningin.
Þegar bæjaryfirvöld í Grindavík gerðu athugasemdir við að fisksalti sem búið var að nota var sturtað í sjóinn þá voru góð ráð dýr samkvæmt tilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu. Eftir töluverð heilabrot fannst afbragðs gott ráð sem byggir á því að endurnota saltið til hálkuvarna og slá þannig tvær flugur í einu höggi; leysa upphaflega vandamálið varðandi förgun og auk heldur að skapa umtalsverðar tekjur í kassann. Þetta er meðal þess sem kemur fram í átaki iðnaðarráðuneytisins, Hækkandi sól, sem miðar að því að miðla jákvæðum fréttum. Þar segir frá að fyrirtækið Haustak í Grindavík hreinsar yfir 3.000 tonn af fisksalti sem gegnt hefur hlutverki sínu og selur sem hálkuvarnarsalt og efni til rykbindingar. Tilraunir og þróun vegna þessarar endurvinnslu hafa staðið í tvö ár og smíðaðar hafa verið þar til gerðar vélar til að hreinsa alla fiskbita úr saltinu. Ábatinn af þessu verkefni er margþættur. Auk þess að skapa atvinnu þá fylgir því umtalsverður gjaldeyrissparnaður að endurnýta fisksaltið sem annars hefði verið fargað. Þá fær Vegagerðin úrvals hálkuvarnarsalt og rykbindingarefni á hagstæðara verði en ella. Haustak er í eigu útgerðarfélaganna Vísis og Þorbjarnar í Grindavík. Auk salthreinsunarinnar vinnur fyrirtækið m.a. að því að þurrka þorskhausa. Endurnýting fisksaltsins er eitt af þeim 16 verkefnum sem fengu styrk úr vaxtarsamningi Suðurnesja í desember.
Mest lesið Twitter-morðinginn tekinn af lífi Erlent Hreinsanir hafnar í Íran Erlent Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Erlent Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Hætta á að Gjögurtáarviti falli í sjóinn Innlent „Fyrir vikið er flokkurinn á hverfandi hveli“ Innlent Ingvar útskrifaður úr meðferð Innlent Maðurinn bak við Stokkhólmseinkennið allur Erlent Litla kaffistofan skellir í lás Innlent Fínasta grillveður í kortunum Innlent Fleiri fréttir Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Sjá meira