Innlent

Varað við slæmu skyggni á Hellisheiðinni og víðar

Hellisheiði.
Hellisheiði.
Snjókoma verður fram yfir hádegi sunnan- og suðvestanlands samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni. Sums staðar verður talsverður bylur og vindur 12-15 m/s með skafrenningi og slæmu skyggni, s.s. á Hellisheiði, í Þrengslum og á Mosfellsheiði.

Það er hálka og skafrenningur á Reykjanesinu samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Snjóþekja og skafrenningur á Suðurstrandavegi.

Það er hálka og éljagangur á Hellisheiði, í Þrengslum og Sandskeiði en hálka eða snjóþekja er á flestum vegum á Suðurlandi.

Á Vesturlandi er hálka og éljagangur á Snæfellsnesi og á Mýrum, hálka er á öðrum leiðum.

Á Vestfjörðum er hálka en hálka skafrenningur á fjallvegum.

Á Norðurlandi vestra er varað við flughálku milli Blönduóss og Skagastrandar annas er hálka á flestum vegum.

Á Norðurlandi eystra er hálka en þæfingur á Hófaskarðsleið og til Raufarhafnar. Snjóþekja er í Kelduhverfi.

Á Austurlandi er hálka eða hálkublettir á flestum vegum.

Víða er greiðfært á Suðausturlandi en þó eru hálkublettir milli Lómagnúps og Víkur og hálka í Meðallandi.

Vegfarendur eru beðnir að hafa í huga að víða er ekki mokstur, eða önnur þjónusta á vegum, á kvöldin og nóttunni. Raunar eru sumir vegir ekki í þjónustu nema fáa daga í viku. Upplýsingar um þjónustutíma eru á vef Vegagerðarinnar og í síma 1777.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×