Innlent

Mokað um helgina og hverfastöðvar opnar

Mynd/GVA
Hverfastöðvar og símaver Reykjavíkurborgar verða með vaktir yfir helgina milli kl. 10:30 - 15:00 bæði laugardag og sunnudag. Íbúar geta sótt sand og salt á hverfastöðvarnar og símaver veitir upplýsingar og tekur við ábendingum í síma 411 11 11. Þetta kemur fram í tilkynningu frá borginni.

Þá segir að snjóruðningstækin muni fara á stjá klukkan fjögur í nótt til að moka umferðargötur og göngustíga. Tækin hafa verið sleitulaust á ferðinni í dag og verða á götunum fram eftir kvöldi.

Hverfastöðvar sem verða opnar um helgina eru við Njarðargötu, Flókagötu, Jafnasel og Stórhöfða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×