Innlent

Tillagan um frávísun felld: 31 - 29

Geir H. Haarde.
Geir H. Haarde.
Alþingi felldi nú rétt í þessu tillögu um að vísa frá tillögu Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um að ákæra á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, verði dregin til baka og Landsdómsmálið þar með. Atkvæðagreiðslan fór þannig að 31 þingmaður greiddi atkvæði gegn henni en 29 voru henni fylgjandi. Þrír voru fjarverandi.

Fjórir þingmenn lögðu tillöguna fram, þau Magnús Orri Schram Samfylkingu, Eygló Harðardóttir Framsóknarflokki, Birgitta Jónsdóttir Hreyfingunni og Lilja Rafney Magnúsdóttir VG.

Tillaga Bjarna mun því fá efnislega umræðu og meðferð á Alþingi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×