Innlent

Fyrri ferð Herjólfs þriðjudag felld niður vegna óhagstæðar veðurspár

Herjólfur.
Herjólfur.
Ákveðið hefur verið að fella niður fyrri ferð Herjólfs þriðjudag vegna óhagstæðrar veðurspár og hefur Veðurstofan gefið út stormviðvörun.

Haft var samband við alla farþega í dag sem áttu bókað far með fyrri ferð þriðjudag og eru allir búnir að færa sig í aðrar ferðir skipsins.

Mun betra útlit er með seinni ferð Herjólfs og er gert ráð fyrir brottför frá Eyjum kl. 15:30 og Þorlákshöfn kl. 19:15.

Farþegar eru vinsamlega beðnir að fylgjast með fréttum á herjolfur.is, facebook síðu Herjólfs og síðu 415 í Textavarpi.

Nánari upplýsingar í síma 481-2800




Fleiri fréttir

Sjá meira


×