Felli þingið rammasamning lendir styrkjakostnaður á skattgreiðendum Þorbjörn Þórðarson skrifar 24. janúar 2012 18:45 Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra.
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, segir að ef þingið samþykki ekki IPA-fjárstyrki frá Evrópusambandinu til verkefna innanlands greiðist kostnaður vegna þeirra úr ríkissjóði. Ísland á rétt á tvenns konar styrkjum í aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Annars vegar er um að ræða svokallaða TAIEX-styrki, sem fela í sér sérfræðiaðstoð frá embættismönnum ESB og hins vegar beina fjárstyrki sem eiga að aðstoða íslenska ríkið og gera það í stakk búið til að ganga inn í sambandið þegar þar að kemur, ef þjóðin samþykkir aðildarsamning í þjóðaratkvæðagreiðslu. Gert er ráð fyrir að IPA-styrkir til Íslands geti numið allt að 30 milljónum evra, sem svarar til um 5 milljarða króna, vegna tímabilsins 2011-2013. Í fjárlögum þessa árs er gert ráð fyrir styrkjum upp á 596 milljónir króna frá Evrópusambandinu fyrir afmörkuð verkefni. Gerð er krafa um að IPA-aðstoð renni óskipt til þeirra verkefna sem henni er ætlað að styðja en verkefni vegna styrkjanna eru boðin út á EES-svæðinu. Alþingi þarf hins vegar að samþykkja þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um rammasamning milli ríkisstjórnarinnar og framkvæmdastjórnar ESB ef afgreiða á styrkina. Ragnheiður Elín Árnadóttir, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, spurði utanríkisráðherra í dag hvað yrði um þá styrki sem gert er ráð fyrir í fjárlögum ef svo færi að þingið felldi tillögu vegna þeirra. „Ef þessi rammasamningur yrði felldur, við héldum að sjálfsögðu áfram með umsóknina, þá þyrfti að leggja til fé til að standa straum af ákveðnum breytingum eins og háttvirtur þingmaður veit. Við undirbúning nýrrar tollskrár, hugsanlega skattkerfishugbúnaði. Þá er það rétt hjá háttvirtum þingmanni að það myndi lenda á íslenskum skattgreiðendum," sagði Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, á Alþingi. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Fleiri fréttir Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Sjá meira