Bankastjóri Landsbankans gæti hækkað um eina og hálfa milljón í launum Höskuldur Kári Schram skrifar 24. janúar 2012 19:00
Mánaðarlaun Steinþórs Pálssonar, bankastjóra Landsbankans, gætu hækkað um allt að eina og hálfa milljón króna verði frumvarp fjármálaráðherra um breytingar á lögum um kjararáð samþykkt. Árið 2009 var lögum um kjararáð breytt þannig að þeir sem heyra undir ráðið, fyrir utan forseta Íslands, máttu ekki vera með hærri laun en forsætisráðherra. Með þessu var ríkið að bregðast við breyttum efnahagslegum raunveruleika eftir hrun. Samkvæmt frumvarpi sem fjármálaráðherra hefur nú lagt fram á Alþingi er gert ráð fyrir því að Kjararáð geti vikið frá þessum viðmiðum. „kjararáði er þá heimilt að víkja frá þessu viðmiði um laun forsætisráðherra ef að það kjararáð getur rökstutt það að það sé nauðsynlegt eða að það sé sem sagt sambærilegir hópar sem að sinna svipuðum störfum með svipaða ábyrgð séu með betri kjör," segir Oddný G. Harðardóttir, fjármálaráðherra. Laun stjórnenda fyrirtækja í eigu ríkisins gætu því hækkað verulega verði þetta frumvarp samþykkt. Af bankastjórum viðskiptabankanna þriggja er það aðeins Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans sem heyrir undir kjararáð en bankinn er að stærstum hluta í eigu ríkisins. Steinþór fær nú um eina milljón á mánuði í laun. „Ég segi oft að ég sé sá bankamaður á Íslandi sem er með lægstu laun fyrir unna stund. Það að vera bankastjóri Landsbankans er ansi mikil vinna," segir Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans. Bankastjóri Arion banka er með tæpar þrjár milljónir á mánuði og bankastjóri Íslandsbanka með rúmar tvær og hálfa. Laun Steinþórs gætu samkvæmt þessu hækkað um allt að eina og hálfa milljón. Fjármálaráðherra segir að upphaflega hafi einungis verið um tímabundna aðgerð að ræða og því sé eðlilegt að breyta lögunum nú. „Það þarf auðvitað að líta á launaþróunina í samfélaginu þannig að starfsmenn ríkisins séu ekki með eitthvað viðmið sem engir aðrir, sem sinna sambærilegum störfum og með svipaða ábyrgð, eru með," segir Oddný að lokum.
Mest lesið Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Innlent Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Innlent Verðhækkanirnar vonbrigði Innlent Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Erlent Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent Fleiri fréttir Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Hrafnagilshverfi stækkar ört Verðhækkanirnar vonbrigði Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann Sjá meira