Yfirlýsing: Egill vill formlega rannsókn á röngum sakargiftum 25. janúar 2012 15:27
Egill Einarsson, sem á síðasta ári var kærður ásamt unnustu sinni fyrir nauðgun segir að kæran eigi ekki við rök að styðjast og vísar í rannsóknargögn lögreglu. Hann hyggst fara fram á að lögregla rannsaki nú hvort um vísvitandi rangar sakargiftir á hendur sér hafi verið að ræða. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Egill sendir frá sér í dag. Ríkissaksóknari hefur kæruna á hendur Agli nú til umfjöllunar en á dögunum barst önnur kæra til lögreglu. Egill segir ennfremur í yfirlýsingunni að þegar gögn og kærur í þessum málum séu skoðaðar verði ekki önnur ályktun dregin en að aðrir en kærendur sjálfir standi á bak við kærurnar og aðförina á hendur sér. Yfirlýsing Egils fer í heild sinni hér á eftir: „Í byrjun desember á síðasta ári barst lögreglu kæra á hendur mér og unnustu minni um nauðgun þann 24. nóvember. Ég lýsti því strax yfir að kæran væri fráleit og ætti ekki við nokkur rök að styðjast. Ég vildi að öðru leyti leyfa lögreglu að sinna rannsókninni í friði eins og eðlilegt er þegar kærur berast til hennar. Nú er hins vegar þeirri rannsókn lokið og mér hafa verið kynnt rannsóknargögn málsins. Þau staðfesta svo ekki verður um villst að kæra um nauðgun á ekki við rök að styðjast og mun ég því óska eftir með formlegum hætti að rannsakað verði hvort um vísvitandi rangar sakargiftir á hendur mér geti verið að ræða. Strax eftir að umrædd kæra hafði verið lögð fram birtist umfjöllun í hana í fjölmiðlum. Þær upplýsingar sem þar komu fram eru hvorki frá mér komnar né lögreglu. Virðist því einhverjum mjög í mun að sverta mannorð mitt og reiðin og hefndarhugurinn hjá þeim sem lengi hefur verið í nöp við mig hefur fengið útrás í þeirri umfjöllun. Í þessari viku barst lögreglu síðan önnur kæra á hendur mér um nauðgun. Komu fréttir af henni á sama tíma í fjölmiðlum. Hverjir nákvæmlega leka slíkum upplýsingum til fjölmiðla er mér ekki kunnugt en ætla má að óvildarmenn mínir standi þar að baki. Umrædd kæra byggir á atviki sem á að hafa gerst fyrir átta árum, eða árið 2004. Eftir að hafa verið kynnt kæran af lögreglu er ég engu nær um hver þessi kona er eða hvert brot mitt er, enda átti sú atvikalýsing sem mér var kynnt ekkert skylt við nauðgun. Er hún því enn óskiljanlegri en fyrri kæran. Þegar gögn og kærur í þessum málum eru skoðaðar verður ekki önnur ályktun dregin en að aðrir en kærendur sjálfir standi á bak við kærurnar og aðförina á hendur mér. Ég hef lengi sætt gagnrýni óvildarmanna minna og get kannski að einhverju leyti sjálfum mér um kennt. En þessi opinbera aðför gegn mér er óskiljanleg og mér finnst reyndar furðulegt að slíkt geti gerst í okkar litla landi. Ég ber eflaust einhverja ábyrgð á því hversu herskáir óvildarmenn mínir hafa verið í yfirlýsingum sínum á opinberum vettvangi í tengslum við rannsókn þessara mála. En aðför að því tagi sem ég og unnusta mín höfum mátt þola er ekki eðlileg. Því var mér nauðugur sá kostur að gefa yfirlýsingu þessa."
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira