Innlent

Landsbjörg varar ferðalanga við

Mynd/Freyr Ingi Björnsson
Slysavarnafélagið Landsbjörg varar fólk eindregið við því að halda á fjöll á norðanverðum Vestfjörðum og á Norðurlandi nú þegar snjóflóðahætta er víða á svæðinu. Í tilkynningu segir að snjóflóð gætu einnig fallið víðar, sérstaklega þar sem fólk er á ferðinni, t.d. á vélsleðum og því ætti enginn að vera á ferð í fjalllendi nema kunna að meta snjóflóðahættu og vera með snjóflóðaýli, stöng og skóflu.

Veðurstofan hefur varað við stórhríð á Vestfjörðum í kvöld og í nótt og svo hvessir á Vesturlandi og verður allhvöss norðanátt í kvöld og í nótt. Á höfuðborgarsvæðinu verður einhver ofankoma og töluverður skafrenningur en mikið er af lausasnjó og má því búast við mikilli ófærð.

„Fólk er því beðið um að vera ekki á ferðinni nema á vel búnum bílum en gera ella ráðstafanir til að komast leiðar sinnar á annan hátt, t.d. með því að nýta sér almenningssamgöngur þar sem þær eru til staðar," segir í tilkynningu Landsbjargar.

„Slysavarnafélagið Landsbjörg vill benda ferðalöngum á að undirbúa sitt ferðalag vel. Aldrei á að leggja af stað nema kanna færð á vegum og veðurspá auk þess að skoða heimasíðuna Safetravel.is. Þar má finna fréttir af ferðaaðstæðum um allt land, búnaðarlista, heilræði og síðast en ekki síst, skilja eftir ferðaáætlun."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×