Ólafsfjarðarmúli og Siglufjarðarvegur lokaðir vegna snjóflóða 25. janúar 2012 21:37 Myndir af Eyrarhlíð sem Hafþór Gunnarsson tók fyrr í dag.
Hættustigi lýst yfir á Súðavíkurhlíð og Eyrarhlíð og eru þessar leiðir því lokaðar. Ólafsfjarðarmúli og Siglufjarðarvegur er lokaðir vegna snjóflóða.Aðvörun Búast má við snjóflóðahættu víða á vegum á Vestfjörðum í dag miðað við veðurspá. Eins er búist við snjóflóðahættu í Ólafsfjarðarmúla og á norðanverðum Tröllaskaga í dag. Ábendingar frá veðurfræðingi fyrir kvöldið og nóttina Víðast verður mjög slæmt hríðarveður um norðvestan- og vestanvert landið í kvöld og nótt. Versnar mjög ofantil í Borgarfirði, á Bröttubrekku, Holtavörðuheiði og við Húnaflóann á milli kl. 18 og 20. Stórhríð og afleitt skyggni. Suðvestanlands hvessir snemma í kvöld með áframhaldandi snjókomu annað veifið í alla nótt. Skafrenningur og þá einnig á Höfuðborgarsvæðinu. Meira og minna stórhríð á Vestfjörðum og utantil á Snæfellsnesi, en tekur að lagast undir morgunn. Við Eyjafjörð og norðaustanlands skánar mikið í kvöld, en versnar aftur með allhvössum NV -vindi og snjókomu snemma í fyrramálið, fyrst við Siglufjörð og Ólafsfjörð. Á sunnanverðu Snæfellsnesi má búast við vindhviðum yfir 30 m/s frá því í kvöld og fram eftir nóttu.Færð og aðstæður Það er hálka á Sandskeiði og hálka og snjókoma á Hellisheiði. Í Þrengslum er hálka og skafrenningur. Á Suðurlandi er snjóþekja og hálka og sumstaðar éljagangur. Hálka er á Reykjanesbraut og öllum leiðum á Reykjanesi. Hálkublettir eru á Vesturlandsvegi. Þæfingsfærð er á Suðurstrandarvegi en þungfært á Krýsuvíkurvegi. Á Vesturlandi og á Snæfellsnesi fer veður og færð vestnandi. Hálka, snjókoma og skafrenningur er á Holtavöðuheiði. Þæfingsfærð og stórhríð er kringum Búðadal. Ófært og stórhríð í Svínadal. Þungfært og stórhríð er á Vatnaleið. Hálka og stórhríð er við Hraunsmúla. Ófært og stórhríð er á Fróðárheiði og á Útnesvegi. Ófært er í Álftafirði. Á Vestfjörðum er þungfært og þæfingsfærð víða. Vegurinn um Súðavíkurhlíð og Eyrarhlíð er lokaður. Ófært er á Gemlufallsheiði, Klettshálsi, Kleifaheiði, Hálfdán og Mikladal. Ófært og stórhríð er í Önundar- og Súgandarfirði, Ísafjarðardjúpi, á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum. Þungfært og stórhríð er frá Króksfjarðarnesi og að Klettsháls. Þæfingsfærð er á Barðaströnd. Þungfært er á Innstrandarvegi. Á Norðurlandi vestra er hálka, snjóþekja og snjókoma. Þæfingsfærð og snjókoma er á Þverárfjalli. Snjóþekja og skafrenningur er á Vatnsskarði. Siglufjarðarvegur er lokaður. Á Norðausturlandi er hálka, snjóþekja og skafrenningur. Ófært er í Ólafsfjarðarmúla. Þæfingsfærð og snjókoma er á Hólasandi. Á Austurlandi er snjóþekja eða hálka. Á Suðausturlandi er snjóþekja eða hálka.
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Fleiri fréttir Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Sjá meira