Innlent

Náðu þjófi á hlaupum með kannabisplöntu í fanginu

Lögreglan fékk ábendingu um að brotist hafi verið inn í hús við Hverfisgötu í Reykjavík rétt fyrir miðnætti, og náði innbrotsþjófnum á hlaupum skömmu síðar. Hann reyndist vera með kannabisplöntu á sér, sem hann hafði stolið í húsinu.

Þegar lögregla var enn á vettvangi, kom húsráðandi, liðlega tvítug kona, óvænt heim og gekk þar fram á lögreglu, sem fann nokkrar plöntur til viðbótar í íbúðinni.

Lögreglan tók þjófinn, húsráðandann og plönturnar í sína vörslu og verður greitt úr málinu í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×