Innlent

Reykjanesbrautin opin en þungfær

Mynd/GVA
Vegagerðin hefur nú opnað Reykjanesbrautina. Lögreglan á Suðurnesjum hvetur fólk þó til þess að sýna sérstaka tillitssemi og varúð. Mælst er til þess að menn taki ekki fram úr heldur aki rólega og af yfirvegun. Enn skefur mikið þótt ofankoma sé hætt og verst er ástandið við afleggjarana til Grindavíkur og til Voga.

Hellisheiðin er enn ófær en búist er við að Þrengslin opni hvað og hverju samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×