Innlent

Hamagangur á Reykjanesbrautinni - myndband

Mikið gekk á við Reykjanesbrautina í morgun en henni var lokað á miðnætti í gær og opnuð um klukkan hálf ellefu í morgun. Fjölmargir bílar sitja fastir og aðstoðuðu björgunarsveitarmenn ökumenn að komast til síns heima í nótt. Þó að búið sé að opna brautina eru ökumenn hvattir til þess að aka rólega og af yfirvegun.

Í meðfylgjandi myndskeiði er hægt að horfa á bílalestina frá Reykjanesbæ og til Reykjavíkur í nótt og í morgun. Eins og sjá má var færðin mjög þungfær og ekki var hægt að keyra nema mjög hægt og í fylgd snjóruðningstækis. Það var Jón Ívarsson sem tók upp myndbandið á ferð sinni í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×