Innlent

Björg Eva Erlendsdóttir kjörin í stjórn RÚV

Björg Eva Erlendsdóttir.
Björg Eva Erlendsdóttir.
Björg Eva Erlendsdóttir var kjörin í stjórn Ríkisúvarpsins ohf. í stað Svanhildar Kaaber. Kosið var í stjórn RÚV á Alþingi í morgun. Björg Eva hefur sjálf unnið sem fréttamaður í áraraðir auk þess sem hún á lítinn hlut í fréttavefnum Smugunni.is sem Vinstri grænir eiga stærstan hlut í.

Aðalmenn voru kosnir Margrét Frímannsdóttir, Björg Eva Erlendsdóttir, Halldór Guðmundsson, Magnús Geir Þórðarson og Magnús Stefánsson. Varamenn voru kosnir Ása Richardsdóttir, Hlynur Hallsson, Lárus Ýmir Óskarsson, Signý Ormarsdóttir og Þórey Anna Matthíasdóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×