Tjáir sig ekki um Guðrúnu bæjarstjóra - Þrír flokkar funda í dag Boði Logason skrifar 29. janúar 2012 14:24 Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Kópavogs. „
Ég ætla ekkert að tjá mig um það, ég held að það sé best að við ræðum þetta innan þessa hóps," segir Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Kópavogs, aðspurð hvort að það komi til greina hjá Samfylkingunni að Guðrún Pálsdóttir, bæjarstjóri, starfi áfram sem bæjarstjóri ef nýr meirihluti verði myndaður. Sjálfstæðisflokkurinn, Vinstri Grænir og Samfylkingin funduðu á föstudaginn um að hefja formlegar meirihlutaviðræður. Í gær, laugardag, ræddu svo flokkarnir við sitt bakland. Guðríður gerir svo ráð fyrir að flokkarnir þrír hittist svo í síðar í dag og ákveði hvort að formlegar viðræður hefjist. Hún segist vera bjartsýn um að flokkarnir þrír nái saman. „Ef menn ganga til verks með jákvæðni og með það að markmiði að ná saman, þá held ég að það hljóti að ganga. Þetta snýst um það með hvaða hugarfari menn setjast að samningaborðinu og við öll ætlum að minnsta kosti að gera okkar besta," segir Guðríður. Guðríður vill ekki gefa upp hvort að Samfylkingin geri einhverjar kröfur, komi til þess að meirihlutaviðræður hefjist. „Það er svo sem ekki góð byrjun á viðræðum að gera kröfur. Þetta snýst um að semja og ná einhverri sameiginlegri niðurstöðu. Það eru auðvitað ákveðin mál sem við teljum mikilvægari að nái í gegn í svona samkomulagi," segir hún. Aðspurð hvort að Samfylkingin fari fram á að fá bæjarstjórastólinn í samkomulaginu við flokkana tvo, segir Guðríður: „Það er ekkert farið að ræða verkaskiptingu. Það skiptir fyrst og fremst máli hvort við náum saman málefnalega og ef það tekst, getum við farið að ræða framhaldið, það er að segja verkaskiptinguna."
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira