Sport

Breti vann fyrsta Ólympíugull kvenna í hnefaleikum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Nicola Adams hefur skráð nafn sitt í sögubækurnar en í gær varð hún fyrsta konan sem vinnur Ólympíugull í hnefaleikum.

Adams er frá Bretlandi og hafði betur gegn Ren Cancan frá Kína í úrslitaviðureigninni. Þær mættust einnig í úrslitum síðustu tveggja heimsmeistarakeppna en hafði þá Cancan betur í bæði skiptin.

Sigur Adams var þó sannfærandi í gær en hún fékk sextán stig gegn aðeins sjö hjá Cancan. Adams náði að slá andstæðing sinn niður í annarri lotu sem gerði í raun út um bardagann.

„Þetta er það sem ég hef leitast eftir allt mitt líf. Draumurinn hefur ræst," sagði Adams sem fékk gríðarlega mikinn stuðning áhorfenda í Excel-höllinni í London.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×