Bíða Alþingis og fresta innheimtu 11. febrúar 2012 09:00 Borgin vill að Alþingi geri ráðstafanir svo hesthús verði í flokki með íbúðarhúsum en ekki atvinnuhúsnæði þegar kemur að fasteignagjöldum. Fréttablaðið/Stefán
Kristbjörg Stephensen borgarlögmaður segir í minnisblaði til borgarráðs að borgin verði að lúta úrskurði yfirfasteignamatsnefndar um álagningu fasteignagjalda á hesthús. Samkvæmt úrskurðinum hafa hesthús í Reykjavík um árabil verið í röngum gjaldaflokki. Fasteignagjöldin hafa nú margfaldast. Hestamenn segja hækkunina vega alvarlega að fjárhagslegum grundvelli þess að halda hesta í höfuðborginni. Kristbjörg segir í minnisblaðinu að borgaryfirvöld hafi þegar vakið athygli efnahags- og viðskiptanefndar á afleiðingum úrskurðarins. Sú skoðun hafi þar verið sett fram að eðlilegra væri að hesthús væru í þeim flokki sem borgin hefði talið þau vera. Í þeim flokki eru meðal annars íbúðarhús, sumarhús, jarðir og útihús á bújörðum. Yfirfasteignamatsnefnd telur hins vegar hesthús í flokki með ýmsu atvinnuhúsnæði; eins og til dæmis iðnaðar-, skrifstofu- og verslunarhúsnæði, fiskeldismannvirkjum og veiðihúsum. „Fyrir liggur að efnahags- og viðskiptanefnd mun taka málið til ítarlegrar skoðunar og á borgarlögmaður fund með nefndinni í næstu viku,“ segir í minnisblaði borgarlögmanns sem beint hefur því til fjármálaskrifstofu borgarinnar að fresta innheimtu fasteignagjalda á hesthús þar til efnahags- og viðskiptanefnd kemst að niðurstöðu.- gar
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum Sjá meira