Óvíst hvaða lög sprengjumaðurinn braut Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 11. febrúar 2012 18:30
Karlmaður á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið sprengjunni fyrir skammt frá Stjórnarráði Íslands. Óvíst er hvaða refsingu hann á yfir höfði sér en svo gæti farið að hann fái einungis sekt. Innanríkisráðherra segir eftirlit hafa verið aukið við ákveðna staði eftir atvikið. Tæpar tvær vikur eru síðan að lögregla var með mikinn viðbúnað á Hverfisgötunni þegar einhvers konar sprengja fannst skammt frá Stjórnarráði Íslands. Í ljós kom að um restar af sprengju var að ræða. Lögregla hefur síðan leitað að þeim sem ábyrgð báru á sprengjunni og birti meðal annars myndir úr eftirlitsmyndavél til að reyna að fá upplýsingar. Í gær voru svo þrír handteknir í tengslum við málið. Tveimur var sleppt aftur en sá þriðji, karlmaður á áttræðisaldri, játaði að hafa hafa komið sprengjunni fyrir. Manninum hefur verið sleppt úr haldi lögreglu þar sem að málið telst upplýst en hann var einn að verki. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að tilgangur mannsins hafi ekki verið að valda skaða heldur koma ákveðnum skilaboðum á framfæri við stjórnvöld. Lögregla hefur þó ekkert viljað gefa upp um hver skilaboðin voru. Lögregla hefur heldur ekki viljað upplýsa úr hverju sprengjan var gerð en í tilkynningunni kemur fram að hún hafi ekki verið til þess fallin að valda eyðileggingu eða hættu, enda hafi maðurinn staðið við hlið hennar þegar hún sprakk. Óvíst er hvaða refsingu maðurinn á yfir höfði sér. „ Sjálfsagt er þetta brot gegn einhverjum ákvæðum lögreglusamþykktar. Það gæti verið einhver sektarrefsing við slíku en ef við göngum út frá því að það sé engin almannahætta, að sprengjan hafi ekki verið hættuleg, þá sé ég enga aðra refsingu í þessu," segir Brynjar Níelsson, formaður Lögmannafélags Íslands Um tvær klukkustundir liðu frá því fyrst var tilkynnt um sprengjuna þar til lögregla kom á svæðið. Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, ætlar að funda með ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu í næstu viku og fara yfir málið. Hann segir að eftirlit hafi verið aukið eftir atvikið. „Það er alltaf gert þegar svona kemur upp þá eru hækkað svona eftirlitsstaðlar, það var gert svona við stjórnarráðsbyggingar og aðra staði. Það er bara rútínuvinnubrögð lögreglunnar," sagði Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Fleiri fréttir Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Sjá meira