Innlent

Fórnarlambið á Þórshöfn með mikla höfuðáverka

Rúmlega sjötugur karlmaður liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild sjúkrahússins á Akureyri eftir alvarlega líkamsárás sem hann varð fyrir á heimili sínu á Þórshöfn í nótt.

Karlmaður á þrítugsaldri braust inn til mannsins og misþyrmdi honum hrottalega samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Húsavík. Árásarmaðurinn var á vettvangi þegar lögreglan kom að heimili mannsins skömmu eftir árásina. Fórnarlambið var illa farið. Hann var mikið skorinn og lemstraður eftir árásina.

Samkvæmt upplýsingum frá framkvæmdarstjór sjúkrahússins á Akureyri var komið með manninn til rannsóknar í morgun og var hann í kjölfarið lagður inn á gjörgæsludeild þar sem hann liggur undir eftirliti. Hann er alvarlega slasaður, meðal annars með höfuðáverka en er ekki talinn í lífshættu eins og er.

Árásarmaðurinn var drukkinn þegar árásin átti sér stað. Hann hefur verið handtekinn. Lögreglan telur að um uppgjör hafi verið að ræða vegna persónulegra mála.

Málið telst upplýst og ekki er talin þörf á því að fara fram á gæsluvarðhald yfir árásarmanninum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×