Hámarkslán verði 40 milljónir Jón Hákon Halldórsson skrifar 21. nóvember 2012 15:28 Sævar Jónsson og eiginkona hans fengu 100 milljónir til að kaupa hús.
Stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins samþykkti á fundi í dag breytingar á lánareglum sjóðsins sem fela í sér að hámarkslán til sjóðfélaga verða framvegis 40 milljónir króna en undanfarin ár hefur ekki verið skilgreint hámark á sjóðfélagalánum að því tilskyldu að nægjanlegt veðrými og greiðslugeta væri fyrir hendi. Jafnframt var ákveðið að setja sérstakar reglur um meðferð lánsumsókna þegar aðilar sem tengjast sjóðnum eiga í hlut. Tilefni þess að stjórn sjóðsins ákvað að herða lánareglur með þessum hætti er frétt DV undanfarna daga þar sem fram hefur komið að Sævar Jónsson, eigandi Leonard, og eiginkona hans fengu lán hjá sjóðnum samtals að upphæð um 100 milljónir króna. Jafnframt hefur komið fram að starfsmaður sjóðsins er skyldur viðkomandi lántakendum. Kristján Örn Sigurðsson, framkvæmdastjóri Sameinaða lífeyrissjóðsins, segir í yfirlýsingu að á fundi með stjórn sjóðsins hafi hann undirstrikað að viðkomandi starfsmaður hafi engin afskipti haft af afgreiðslu þessa máls á sínum tíma. Kristján segist hafa upplýst að umræddir lántakendur hafi verið sjóðfélagar þegar lánið var veitt. „Ekki var óskað eftir sérstöku greiðslumati á þessum tíma heldur var kannað hvort viðkomandi væru á vanskilaskrá sem ekki reyndist vera. Fyrir láninu var tekinn 1. veðréttur í fasteign lántakenda sem samkvæmt nýju verðmati löggilts fasteignasala er metin á um 180 milljónir króna. Lánið hefur verið í skilum frá upphafi. Tekið skal fram að Sameinaði lífeyrissjóðurinn hefur ekki komið að öðrum lánveitingum sem tengjast viðkomandi sjóðfélögum eða fyrirtækjum þeirra," segir í yfirlýsingu Kristjáns.
Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Eldur í Árbænum Innlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Erlent Fleiri fréttir Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Sjá meira