Feðgar dæmdir fyrir árás á verslunarmann Jón Hákon Halldórsson skrifar 10. maí 2011 14:55 Héraðsdómur Reykjaness kvað upp dóminn.
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag tvo karlmenn, sem eru feðgar, í skorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á starfsmann í Fjarðakaupum í Hafnarfirði í apríl 2009. Starfsmaðurinn hugðist stöðva konu, sem er móðirin í fjölskyldunni, þegar að honum sýndist konan hafa stungið inn á sig geisladiskum úr versluninni. Eftir að þeir réðust að starfsmanninum réðust þeir á annan mann við verslunina sem hugðist koma starfsmanninum til aðstoðar. Starfsmaður verslunarinnar bar fyrir dómi að fjölskyldufaðirinn hefði ráðist á sig þegar hann hafði afskipti af konunni og hún strunsað burt. Meðal annars hafi hann skallað sig. Síðan hafi sonurinn snúið sig niður í götuna. Feðgarnir neituðu hins vegar sök og sögðu að starfsmaðurinn hefði ráðist á föðurinn og sonurinn þá snúið hann niður í götuna. Þeir neituðu líka árás á manninn sem hugðist koma starfsmanninum til hjálpar. Dómurinn taldi hins vegar, meðal annars á grundvelli framburða vitna sem voru á staðnum, að sekt feðganna væri sönnuð. Faðirinn var því dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi en sonurinn í 30 daga fangelsi. Refsing var ákveðin meðal annars með það til hliðsjónar að málsmeðferð hefði dregist frá því að rannsókn málsins lauk.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara Norðurleiðina“ Innlent Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Innlent Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Fleiri fréttir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara Norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Sjá meira