Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í gær þrjá eþíópíska ríkisborgara í 30 daga fangelsi fyrir að framvísa röngum vegabréfum við komuna til Íslands. Fólkið kom með flugi frá Osló á föstudaginn. Fólkið játaði brot sitt skýlaust fyrir dóminum. Um er að ræða karlmenn sem fæddir er 1965 og 1975 og konu sem er fædd árið 1978.
