Írskur boxari og stamandi konungur í kvikmyndahús 27. janúar 2011 20:00
Fjórar kvikmyndir verða frumsýndar hérlendis á morgun. Tvær þeirra voru á þriðjudag tilnefndar til nítján Óskarsverðlauna samanlagt. Kvikmyndaunnendur hafa úr fjórum nýjum kvikmyndum að velja þessa helgina. Þær eru The Fighter, The King"s Speech, The Dilemma og From Prada to Nada. The Fighter er sannsöguleg hnefaleikamynd með Mark Wahlberg í hlutverki boxarans Micky Ward. Hann var alltaf kallaður „Sá írski" og náði að verða heimsmeistari í veltivigt. Myndin segir frá ævintýralegri leið hans að titlinum og samskiptum hans við hálfbróður sinn, fyrrverandi boxarann Dicky, sem lenti ungur á glæpabrautinni og í dópneyslu. Christian Bale fer með hlutverk Dicky á eftirminnilegan hátt og þykir líklegur til að hreppa Óskarinn sem besti leikari í aukahlutverki. Leikstjóri The Fighter er David O. Russell sem hefur áður unnið með Wahlberg við myndirnar I Heart Huckabees og Three Kings. The King"s Speech leiðir kapphlaupið til Óskarsverðlaunanna með tólf tilnefningar. Myndin segir frá manni sem seinna varð George VI. konungur Bretlands, og faðir núverandi drottningar, Elísabetar II. Eftir að bróðir hans afsalar sér völdum tekur George, eða „Bertie" eins og hann var kallaður, við krúnunni. Mikið stam plagar hann og hann er engan veginn tilbúinn til að verða konungur. Hann leitar því til óhefðbundins talmeinafræðings, Lionels Logue, í von um að fá bót meina sinna. Colin Firth leikur konunginn og er tilnefndur til Óskarsins rétt eins og meðleikarar hans, þau Geoffrey Rush og Helena Bonham Carter. Leikstjóri The King"s Speech er Tom Hooper sem gerði hina vönduðu sjónvarpsþætti John Adams. Vince Vaughn, Kevin James og Winona Ryder eru í helstu hlutverkum í gamanmyndinni The Dilemma. Hún fjallar um vinina Ronny og Nick sem eiga bílahönnunarfyrirtæki. Þegar Ronny sér eiginkonu Nicks með öðrum manni vandast málin og við tekur skondin atburðarás. Leikstjóri er Ron Howard, sem hefur sent frá sér myndir á borð við Angels & Demons, Frost/Nixon, The Da Vinci Code og A Beautiful Mind. From Prada to Nada er rómantísk gamanmynd undir áhrifum frá skáldsögu Jane Austen, Sense and Sensibility. Hún fjallar um tvær systur sem fæðast með silfurskeið í munni en missa allt þegar faðir þeirra deyr. Aðstæður þeirra gjörbreytast þegar þær þurfa að flytja til fátækrar frænku sinnar í austurhluta Los Angeles. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Fleiri fréttir Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Sjá meira