Innlent

Landeyjahöfn „ekki neitt vandræðabarn“

Kristján Möller, þingmaður Samfylkingar.
Kristján Möller, þingmaður Samfylkingar.
Í útvarpsþættinum Á Sprengisandi ræddu þingmenn um kjördæmapot og hvað í því hugtaki fælist.

Sigurjón M. Egilsson, þáttarstjórnandi, rifjaði upp að fyrir 20 árum þegar hann starfaði á þinginu hafi almenningur gjarna hringt í landsbyggðarþingmenn og beðið þá að ýta á eftir sínum persónulegu málum á þinginu. Hann spurði hvort það viðgengist ennþá?

Það tóku gestir Sigurjóns alveg fyrir, en gestirnir voru Tryggi Þór Herbertsson, Kristján Möller og Eygló Harðardóttir.

Tryggi segir fólk stundum leita til þingmanna með persónuleg málefni, en það sé þá frekar til að leita leiðbeininga heldur en að nýta sér aðstöðu þingmannanna. Tímarnir séu breyttir.

Mikið var rætt um samgöngumál, enda Kristján fyrrverandi samgögnuráðherra og samgöngumál einnig sá málaflokkur sem þingmenn eru helst sakaðir um kjördæmapot.

Fram kom að það væri eðlilegt að þingmenn rækjust í samgöngumálum sinni kjördæma. Á þingi væri ákveðin verkaskipting og það væri beinlínis hluti af skyldum þeirra.

Fjallað var um vandamálin sem hlotist hafa af Landeyjahöfn og framkvæmdunum við hana. Kristján lagði áherslu á að Landeyjahöfn væri „ekki neitt vandræðabarn" og sagðist fullviss um að öll vandamál varðadi þetta mannvirki muni leysas þegar fram líða stundir.

Kristján fjallaði um Landeyjahöfn og Héðinsfjarðargöng í sambandi við byggðastefnu. Hann sagði höfuðborgarbúa sjaldnast skilja að svona framkvæmdir væru það sem gæti skilið milli feigs og ófeigs.

„Þetta er byggðastefna sem bragð er af," sagði Kristján. Hann sagði að á árum áður hefði miklu fjármagni verið eytt í vegaframkvæmdir í kring um höfuðborgarsvæðið. Nú væri verið að „leiðrétta" þá misskiptingu með umfangsmiklum samgöngubótum á landsbyggðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×