Innlent

Andmæla sköttum og kvótamáli

Skilanefnd gamla Landsbankans hefur fyrir hönd kröfuhafa sem eiga 19 prósent í nýja Landsbankanum sett fram formleg andmæli við ýmsum ákvörðunum og áformum íslenskra stjórnvalda sem kröfuhafarnir telja að geti rýrt virði eignasafns bankans. Þar á meðal eru kvótafrumvörp Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hyggst skilanefnd gamla Landsbankans jafnframt andmæla formlega áformum í fjárlagafrumvarpinu um nýjan skatt á launagjöld fjármálafyrirtækja.

Andmælin eru sett fram samkvæmt ákvæðum í samningum kröfuhafa við íslenska ríkið og nýja Landsbankann. Samkvæmt samningunum var gefið út skuldabréf, sem getur að hámarki orðið 92 milljarðar króna. Bréfið er skilyrt og fer fjárhæð þess eftir mati á tilteknu eignasafni nýja bankans, sem eru annars vegar kröfur á stór fyrirtæki og hins vegar á lítil og meðalstór fyrirtæki.

Skilanefnd og starfsfólk hennar, undir forystu svokallaðs tilsjónarmanns, fylgist náið með þróun eignasafnsins og setur fram formleg andmæli ef nýi bankinn eða stjórnvöld grípa til einhverra aðgerða sem nefndin telur að geti lækkað virði eignasafnsins eða haft neikvæð áhrif á afkomu bankans. Rök skilanefndarinnar fyrir formlegum andmælum við til dæmis kvótafrumvarpinu eru að samþykkt þess muni hafa neikvæð áhrif á möguleika sjávarútvegsfyrirtækja í viðskiptum við nýja bankann á að endurgreiða lán sín.

Í árslok 2012 verður eignasafnið metið. Nái hækkun þess 92 milljörðum króna eignast gamli bankinn, það er kröfuhafarnir, skuldabréfið og skilar um leið öllum hlut sínum í nýja Landsbankanum til fjármálaráðuneytisins.

Verði hækkunin hins vegar minni að mati sérstaks matsmanns skila kröfuhafarnir aðeins hluta af eign sinni í Landsbankanum. Um leið áskilja þeir sér samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins rétt til að sækja með öðrum aðferðum, hugsanlega dómsmálum, það sem upp á vantar og rekja má til ákvarðana sem hefur verið formlega mótmælt. Til þess gæti því komið að kröfuhafar létu reyna á áhrif kvótafrumvarpa og skattabreytinga fyrir dómstólum.- óþs




Fleiri fréttir

Sjá meira


×