Kynntir sem Dikita frá Írlandi 18. febrúar 2011 10:00 Hljómsveitin Dikta var kölluð Dikita og sögð vera frá Írlandi á tónlistarhátíðinni Eurosonic.
Hljómsveitin Dikta lenti í skondnu atviki á tónlistarhátíðinni Eurosonic í Hollandi á dögunum. Þá var hún kynnt upp á svið sem hljómsveitin Dikita frá Írlandi. „Við hlógum mikið að þessu,“ segir trommuleikarinn Jón Þór Sigurðsson, eða Nonni kjuði. Sérstaklega þótti þeim fyndið að stúlkan sem kynnti þá hafði skömmu áður komið til þeirra og spurt hvernig hún ætti að kynna þá. Þeir sögðust einfaldlega heita Dikta og kæmu frá Íslandi og brást hún þá við með því að segja: „Segið mér eitthvað sem ég veit ekki“. „Svo klúðraði hún þessu gjörsamlega, greyið stelpan,“ segir Nonni og hlær. „Hún var reyndar mjög sorrí yfir þessu eftir á. Við gerðum mikið grín að þessu þegar við vorum að spila og sögðumst vera Dikita frá Írlandi.“ Nafnið Dikta hefur vafist fyrir fleiri útlendingum og sumir ruglast á hljómsveitinni og bandarískum ruðningsþjálfara sem heitir Mike Ditka. „Menn hafa stundum ruglað þessu saman en við höfum bara húmor fyrir því,“ segir Nonni. Fram undan hjá Diktu er spilamennska á tónlistarhátíðinni South By Southwest í Texas í mars. Skömmu áður spilar sveitin í Los Angeles á nokkrum tónleikum. Í maí fer Dikta síðan á tónleikaferð um Þýskaland, Austurríki, Sviss og Danmörku. Þar verður platan Get it Together kynnt, sem kemur út á vegum fyrirtækjanna Smarten-Up og Rough Trade í Evrópu 11. mars. - fb
Mest lesið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Britney ákærð fyrir ölvunarakstur Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Stór brjóst eru stór Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið Guðjón Friðriksson heiðursborgari Reykjavíkur Menning Fleiri fréttir Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Sjá meira