Innlent

Veitti ölvuðum ökuníðingi eftirför

Ölvunarakstur. Myndin er úr safni.
Ölvunarakstur. Myndin er úr safni.

Karlmaður var handtekinn í Reykjavík í nótt vegna ölvunaraksturs. Hann ók á aðra bifreið og stakk svo af.

Sá sem fyrir tjóninu varð veitti honum eftirför og hafði samband við lögreglu á sama tíma.

Lögreglan kom svo á vettvang og stöðvaði för hins drukkna og mátti hann gista fangageymslur og verður svo yfirheyrður í dag.

Að öðru leytinu til var nóttin róleg hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×