Ríkissáttasemjari að máli Sólheima 6. janúar 2011 03:30 Framkvæmdastjóri Sólheima segir komandi viðræður við Árborg skera úr um getu sveitarfélaga til að annast málefni fatlaðra sem flutt voru til þeirra um áramót. „
Við vorum sammála um að halda viðræðunum áfram undir handleiðslu ríkissáttasemjara og hann féllst á það,“ segir Guðmundur Ármann Pétursson, framkvæmastjóri Sólheima, um samningaviðræður við sveitarfélagið Árborg um rekstur stofnunarinnar. Forsvarsmenn Sólheima eru eins og kunnugt er óánægðir með ákvörðun Alþingis um að flytja málefni fatlaðra frá ríkinu til sveitarfélaga um nýliðin áramót. Þeir telja að sveitarfélög ráði vart við slíkt verkefni. Milli jóla og nýárs var gerður samningur milli Árborgar og Sólheima um reksturinn í janúar til að skapa svigrúm til að leysa málið. Fyrsti formlegi fundurinn aðilanna hjá ríkissáttasemjara verður á morgun. „Það hefur verið talað um að vinna þetta mjög hratt og leggja áherslu á að klára þetta í janúar. Það er staðan þar til annað kemur í ljós. Við göngum inn í þetta með von um að málið leysist,“ segir Guðmundur. Hann kveður viðræðurnar nú ákveðinn prófstein á getu sveitarfélaganna í þessum málaflokki. „Þetta er fyrsta verkefnið sem mun í raun skera um hvort þær yfirlýsingar eru réttar að sveitarfélögin ráði við yfirfærsluna,“ segir framkvæmdastjóri Sólheima.- gar
Mest lesið „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Tate-bræður teknir fastir í Miami Erlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Bílvelta í Skötufirði Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Forseti Ungverjalands segir af sér Erlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Ekki lengur ákærður fyrir tilraun til manndráps Erlent Tveir bandarískir hermenn látnir eftir árásir Írans Erlent Fleiri fréttir Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Bílvelta í Skötufirði Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Kvöldfréttir Sýnar í beinni Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Sjá meira