Lífið

Stjörnustríð sýnt í þrívídd

Allar sex Star Wars myndirnar verða sýndar í þrívídd næstu sex árin.
Allar sex Star Wars myndirnar verða sýndar í þrívídd næstu sex árin.
Allar sex Star Wars myndirnar verða sýndar í þrívídd í kvikmyndahúsum næstu sex árin í réttri röð. Þetta eru góð tíðindi fyrir hina fjölmörgu aðdáendur Stjörnustríðsins.

Byrjað verður á Star Wars I: The Phantom Menace og verður hún frumsýnd á Íslandi 10. febrúar 2012. Tæplega 65 þúsund manns sáu hana eftir að hún var frumsýnd á Íslandi 1999 og er hún á meðal vinsælustu mynda sem hafa verið sýndar hérlendis. Hún náði inn tæpum fjörutíu milljónum króna í aðgangstekjur. Star Wars II: Attack of the Clones verður næst sýnd árið 2013.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.