Sjónvarpsútsendingum á Íslandi umbylt 16. júní 2011 08:30 Ríkissjónvarpið Kröfur um háskerpu- og þrívíddarsjónvarp og gagnvirkni hafa þrýst á um uppfærslu á dreifikerfi RÚV. FréttablaðiÐ/GVA
Miklar breytingar verða á fyrirkomulagi sjónvarpsútsendinga á Íslandi á næstu misserum. Stefnt er að því að hliðrænum sjónvarpsútsendingum verði hætt í lok næsta árs. Sjónvarpsútsendingar munu í kjölfarið ekki nást í gegnum gamla góða loftnetið heldur þarf að koma sér upp örbylgjuloftneti eða fá útsendingar sendar í gegnum ljósleiðara. Þá verður stafrænt sjónvarpstæki eða sérstakt rafrænt viðtökubox nauðsynlegt til að ná útsendingum. Nýverið var breiðbandsútsendingum Símans hætt og þar með eru fjögur dreifikerfi á sjónvarpsútsendingum eftir á markaðnum. RÚV sendir hliðrænt sjónvarp út í gegnum loftnet en það gerir Vodafone líka. Þá býður Vodafone einnig upp á stafrænt sjónvarp í gegnum örbylgjuloftnet og netsjónvarp í gegnum ljósleiðara. Síminn býður núna einungis upp á netsjónvarp sem er kallað ljósnet. Er sjónvarpsútsendingum og interneti dreift saman í gegnum ljósnetið, sem býður upp á mun meira gagnamagn en áður hefur verið í boði. Til að ná útsendingum Símans og Vodafone þarf að kaupa myndlykil af fyrirtækjunum. Hliðrænar sjónvarpsútsendingar hafa þegar verið lagðar niður í Danmörku, Noregi og Svíþjóð, auk þess sem Evrópusambandið hefur sett markmið um að stafræn dreifing taki við af hliðrænni í aðildarríkjum sambandsins í árslok 2012. Ekki liggur enn fyrir hvernig dreifingu RÚV verður háttað þegar hliðrænum sjónvarpsútsendingum verður hætt en að sögn Kristjáns Benediktssonar, starfsmanns við dreifikerfi RÚV, er allt enn opið í þeim efnum. Ljóst sé hins vegar að allir muni þurfa að koma sér upp stafrænu sjónvarpsviðtæki, annað hvort nýju sjónvarpstæki með innbyggðu stafrænu viðtæki, eða sérstöku stafrænu viðtökuboxi sem tengt sé milli loftnets og sjónvarps. magnusl@frettabladid.is
Mest lesið Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Erlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Innlent Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Innlent „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Innlent Brugðið yfir því hvernig talað sé um Ólaf Ragnar Innlent Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Innlent Fleiri fréttir Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Kostnaður aldraðra gæti aukist um 50 þúsund krónur Virðist ekki iðrast stunguárása og ofbeldis gegn móður sinni Fengu öll áletraða skammbyssu að gjöf frá Erdogan Sjá meira