Tíu ára gömul og framleiðir barnaskó 31. október 2011 21:30
Erla Guðmundsdóttir er tíu ára og æfir söng. Hana langaði mikið til að fara á Frostrósartónleika og fékk þá hugmynd að hún gæti nýtt sér hannyrðakunnáttu sína og selt afrakstur hennar til að safna sér fyrir miðanum. Úr varð að hún fór að framleiða barnaskó í alls kyns stærðum, sem eru prjónaðir í margbreytilegum litum úr ull og þæfðir. „Ég lærði að prjóna hjá mömmu minni fyrir um ári síðan og hef gert ýmislegt, peysu handa frænku minni, trefla, húfur og fleira. Svo sá ég mömmu gera svona skó, sem hún var bara að gefa í gjafir, afmælisgjafir og slíkt, og ákvað að prófa sjálf," segir Erla en móðir hennar segir dótturina algera maskínu í prjónaskapnum. Eftir að hugmyndin kom upp um að Erla myndi safna sér fyrir tónleikamiðanum fór hún að selja skóna á hárgreiðslustofu móður sinnar, Hársnyrtistofu Söru í Grafarvogi. Þar hafa þeir vakið mikla athygli viðskiptavina, bæði þeir sem eru úr klassískum ljósum og grátóna ullarlitum og svo litskrúðugri gerðir og framleiðslan hefur undið upp á sig. „Þá fór frænka mín með nokkur pör í vinnuna til sín og seldi þar. Jú, mér finnst mjög gaman að gera skóna og ekki sérlega erfitt, nema kannski að gera hringina," segir Erla. Erla prjónar yfirleitt eitthvað á hverju kvöldi en annars er mikið að gera hjá henni því auk skólans og söngsins æfir hún körfubolta. Því nýtast kvöldin ágætlega og Erla segir að yfirleitt sé kveikt á sjónvarpinu sem hún kíki þá stundum á yfir vinnunni. Hún segist hvergi nærri hætt í framleiðslunni meðan eftirspurn er fyrir hendi þótt hún nái að safna fyrir tónleikamiðanum. juliam@frettabladid.is
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíll hafnaði á ljósastaur Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Handteknir eftir líkamsárás Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Erlent Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Fleiri fréttir Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíll hafnaði á ljósastaur Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Sjá meira