VG ítrekar ESB andstöðu 31. október 2011 12:14 Steingrímur J. Sigfússon formaður VG.
Lagst er gegn frekari niðurskurði í heilbrigðiskerfinu og heræfingum Nató í íslenskri lögsögu hafnað í ályktunum sem landsfundur Vinstri grænna samþykkti í gær. Flokkurinn ítrekaði ennfremur andstöðu sína við inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Heildarniðurskurður í heilbrigðismálum samkvæmt fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra, fyrir árið 2012 nemur tæpum þremur milljörðum króna eða tvö komma fimm prósent. Niðurskurðurinn hefur verið harðlega gagnrýndur og tekur landsfundur vinstri grænna að hluta undir þá gagnrýni. Í ályktun um heilbrigðiskerfið sem var samþykkt í gær segir meðal annars að heilbrigðiskerfið sé löngu komið að þolmörkum og ekki sé hægt að ganga lengra án þess að skerða þjónustu við sjúklinga. Því er frekari niðurskurði hafnað og lagt til að aukið svigrúm í ríkisfjármálum verði nýtt í þágu heilbrigðisþjónustu til að byggja hana upp til frambúðar. Landsfundurinn ítrekaði ennfremur andstöðu sína við inngöngu Íslands í Evrópusambandið en í ályktun sem samþykkt var á fundinum er þó ekki lagt til að aðildarumsókn verði dregin til baka. Landsfundur fagnar ennfremur þingsályktunartillögu um að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að nató. Tillagana var lögð fram á Alþingi í haust en að henni standa allir þingmenn vinstri grænna nema Steingrímur J. Sigfússon og Jón Bjarnason. Fundurinn hafnaði sömuleiðis heræfingum Nató herja í íslenskri lögsögu þar á meðal loftrýmiseftirlit en í ályktun segir að flugæfingar þessar séu háskalegar, truflandi, skapi óöryggi og hræðslu og þjóni mannfjandsamlegum tilgangi.
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Handteknir eftir líkamsárás Innlent Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Erlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Fleiri fréttir „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Sjá meira