77 ráðningar án auglýsinga 31. október 2011 10:29 Mynd/Valgarður
Ráðuneytin réðu alls 77 sinnum í stöður án auglýsinga frá ársbyrjun 2009 fram í september síðastliðinn. Þetta kemur fram í svörum ráðuneytanna við fyrirspurn Fréttablaðsins. Nær allar ráðningarnar eru hins vegar til skamms tíma, vegna afleysinga eða skemmri verkefna, og því innan marka sem sett eru í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og reglur um auglýsingar á lausum störfum. Þar segir annars vegar að ekki þurfi að auglýsa störf sem eigi að standa í tvo mánuði eða skemur, ekki heldur störf við afleysingar í tólf mánuði eða skemur, né störf sem áður voru auglýst innan sex mánaða og þess getið að umsóknin um þau gildi í sex mánuði. Hins vegar er heimilt að ráða starfsmann til starfa tímabundið án auglýsingar, en tímabundnar ráðningar mega þó ekki vara samfellt lengur en í tvö ár. Þrjú ráðuneyti hafa hins vegar farið á svig við ákvæði um gildistíma ráðninga: fjármálaráðuneytið sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið og innanríkisráðuneytið. Fjármálaráðuneytið réði í tvær stöður sérfræðinga án auglýsingar, en í svari til Fréttablaðsins segir að fólkið hafi fyrst verið ráðið vorið 2008 tímabundið án auglýsingar "með vilyrði um fastráðningu að loknum reynslutíma sem efnt var að honum loknum". Ástæðan sem ráðuneytið gefur fyrir því er að þegar fólkið var upphaflega ráðið hafi aðstæður á vinnumarkaði verið sérstakar. Fjármálaráðuneytið hafi þá "ítrekað og árangurslaust reynt að fá til sín starfsfólk með þessa menntun", en án árangurs og því hafi verið brugðið á þetta ráð. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið réði í eina stöðu við símavörslu tímabundið vegna veikinda en ráðningin var framlengd ótímabundið. Starfsmaðurinn hefur þó enn ekki náð því tveggja ára hámarki sem reglur heimila. Í síðasta tilfellinu var Einar Árnason ráðinn ráðgjafi Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra í ársbyrjun og gildir ráðning hans um óákveðinn tíma á meðan Ögmundur er í sínu starfi. Sú skýring er gefin að Einar hafði áður verið aðstoðarmaður Ögmundar í samgönguráðuneytinu, en Halla Gunnarsdóttir, sem gegndi sama starfi í dómsmálaráðuneytinu, er núverandi aðstoðarmaður innanríkisráðherra. Um áramótin fær innanríkisráðherra hins vegar lagaheimild til að bæta við sig aðstoðarmanni, sem yrði væntanlega Einar, og þá stöðu þarf ekki að auglýsa. Á heildina litið eru flestar tíma bundnar óauglýstar ráðningar í stærri ráðuneytunum. Velferðarráðuneytið réði þannig nítján sinnum án auglýsingar og innanríkisráðuneytið réði tuttugu sinnum án auglýsingar. thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Handteknir eftir líkamsárás Innlent Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Erlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Fleiri fréttir Árásarmaður elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Sjá meira