Talið að smyglleiðin hafi verið notuð áður 31. október 2011 12:04
Lögregla telur að smyglleiðin sem notuð var þegar tugum kílóa af fíkniefnum var komið hingað til lands með gámaskipi frá Hollandi, hafi verið notuð áður. Tveir menn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna málsins, sem er það stærsta sem komið hefur upp hér á landi á árinu. Það var hinn tíunda október sem lögreglan lagði hald á sendingu sem kom hingað til lands með gámaskipi frá Hollandi. Í sendingunni voru, samkvæmt heimildum fréttastofu, einhverjir tugir kílóa af fíkniefnum, meðal annars e-pillur, kókaín, amfetamín og sterar. Sendingin var stíluð á lítið heildsölufyrirtæki í matvælaiðnaði hér á landi og var starfsmaður þess handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald í kjölfarið. Maður sem talinn er vera höfuðpaurinn í málinu kom síðan hingað til lands með flugi um helgina og var handtekinn við komuna til landsins. Hann var í kjölfarið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 11.nóvember. Rannsókn lögreglu er afar umfangsmikil og hefur meðal annars verið stuðst við símhleranir, sem hafa staðið yfir síðan í byrjun sumars eftir því sem fréttastofa kemst næst. Þá grunar ögreglu að þessi tiltekna smyglleið, það er að segja, sending með gámaflutningaskipi frá Hollandi til Íslands hjá þessu tiltekna fyrirtæki, hafi verið notuð oftar en í þetta eina skipti. Athygli vekur þó að starfsmaður fyrirtækisins sem nú situr í gæsluvarðhaldi, hefur ekki komist í kast við lögin áður. Fréttastofa hefur rætt við forstjóra fyrirtækisins vegna málsins sem vildi lítið tjá sig. Hann sagði þó að fyrirtækið tengdist málinu ekki á neinn hátt.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira