Eigandi Carter segist víst klippa fatlaða 31. október 2011 20:18
Fatlaðri konu í hjólastól var neitað um klippingu á hárgreiðslustofu í Hafnarfiði um helgina. Eigandi stofunnar segir fatlaða almennt velkomna. Umrædd kona hafi hins vegar verið í stórum sérsmíðuðum stól sem gerði starfsfólki erfitt um vik. Þroskaþjálfi á sambýli í Hafnarfirði skrifaði um málið á Facebook í gærkvöldi og vakti það strax mikla athygli. „Ég varð orðlaus þegar okkur var vísað út af hárgreiðslustofunni vegna þess að konan var í hjólastól og starfsfólkið fengi verk í bakið við það að klippa hana, ég hef í ýmsu lent í gegnum tíðina en aldri svona," sagði Hanna Dóra Stefánsdóttir, þroskaþjálfi á Facebook. Róbert Magnússon, eigandi hárgreiðslustofunnar, finnst umræðan hins vegar vera á villigötum. „Upphaflega komu kvartanir meðal starfsmanna að þetta sé mjög erfitt verkefni. Stóllinn sé svolítið stór og fyrir. Þannig ég bað um, og hafði samband deginum á undan, hvort að það væri ekki hægt að „svissa" um stól til þess að það sé léttara að klippa hana af því notabene því við höfum klippt hana áður og vitum hversu erfitt það er. Svörin voru engin og svo mæta þau á svæðið og ég vildi helst færa hana um stól en það var ekki hægt. Til þess að vernda mitt starfsfólk, ég vil náttúrlega hafa það á heilu og höldnu, og þetta kemur blessaðri konunni ekkert við, hún er sárasaklaus, þá varð ég að neita," segir Róbert. Netheimar hafa logað í dag vegna málsins og meðal annars hefur fólk lýst andúð á yfirlýsingu sem sögð er frá Róberti þar sem segir að stofan afgreiði ekki fatlað fólk. Róbert segist hins vegar ekki hafa skrifað hana og bendir á að fjöldi viðskiptavina hans séu fatlaðir. „Venjulegur hjólastóll, eins og er búið að vera sýna á netinu, þá skal ég glaðlegur klippa hana í beinni útsendingu," segir hann að lokum.
Mest lesið Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Innlent Kominn á sjúkrahús eftir krefjandi ferð Innlent Hús bleikjuvinnslu varð að Syndabæli Innlent Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Innlent Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Innlent Fyrrum Ólympíufari ákærður fyrir að skemma laugina við Lincoln-minnismerkið Erlent Agnes var meira en bara morðingi Innlent Vill að ríkið taki við sölu vímuefna Innlent Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Erlent Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Veður Fleiri fréttir Hús bleikjuvinnslu varð að Syndabæli Kominn á sjúkrahús eftir krefjandi ferð Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Krefjandi sjúkraflug milli Íslands og Grænlands Ráðherra undir þrýstingi, eldsneytismarkaðurinn til skoðunar og pottum lokað Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Vill að ríkið taki við sölu vímuefna Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Heilsustofnunin í Hveragerði fær langtímasamning Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Reyndist ekki vera hópuppsögn Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Tugir vilja feta í fótspor Fannars Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Ein hópuppsögn í júní Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sjá meira