Lífið

Ferskar tískufyrirmyndir

Bandaríski plötusnúðurinn Leigh Lezark sem er einn þriðji hluti plötusnúðaþríeykisins The Misshapes hefur lengi verið hluti af tískuelítunni í New York. Hún er með flottan persónulegan stíl sem þykir bæði dökkur og hátískulegur.
nordicphotos/getty
Bandaríski plötusnúðurinn Leigh Lezark sem er einn þriðji hluti plötusnúðaþríeykisins The Misshapes hefur lengi verið hluti af tískuelítunni í New York. Hún er með flottan persónulegan stíl sem þykir bæði dökkur og hátískulegur. nordicphotos/getty
Smekkkonur á borð við Alexu Chung, Daisy Lowe, Chloé Sevigny og Carrey Mulligan þóttu bera af í klæðaburði árið 2010 og voru allar með puttann á púlsinum þegar kom að nýjustu tískustraumum. Nokkur ný andlit hafa nú stigið fram á sjónarsviðið sem vert er að taka eftir. Þar fer fremst í flokki nýr ritstjóri franska Vogue, Emanuelle Alt, sem verður án efa meira í sviðsljósinu núna.
Hanneli Mustaparta Norski tískubloggarinn hefur slegið rækilega í gegn á undanförnu ári. Stúlkan gerði það áður gott sem fyrirsæta og þekkir því alla kima tískuheimsins vel. Mustaparta er með klassískan og kvenlegan stíl og fylgist vel með nýjustu tísku.
Elin kling Kling, til vinstri, er fyrsti tískubloggarinn sem hannar fatalínu fyrir heimsþekkt tískufyrirtæki, og það eitt og sér segir manni margt. Fatalína sem Kling hannaði í samstarfi við H&M er væntanleg í verslanir í Svíþjóð í febrúar.


Charlotte Le Bon Kanadíska fyrirsætan Le Bon þykir með eindæmum smekkleg og klæðist gjarnan fallegum kjólum og pilsum. Vert er að fylgjast með henni á næstunni.
Emanuelle Alt Hin nýja ritstýra franska Vogue hefur unnið innan tískubransans í mörg ár. Henni hefur lengi verið hampað fyrir flottan fatastíl, sem er alls ólíkur fatastíl fyrirrennara hennar. Hún verður án efa meira í sviðsljósinu í framtíðinni vegna nýrrar stöðu sinnar.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.