Sjaldséð eðla í Landakotskirkju 11. febrúar 2011 08:30 Eðlan bíður nú örlaga sinna í tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum. Samsett mynd/Ómar F., Valli
Séra Patrick Breen, sóknarpresti í Landakotskirkju, brá nokkuð í brún í gær þegar hann frétti af því að á kirkjugólfinu stæði rúmlega meters löng græneðla (e. iguana). Séra Patrick segir að kirkjuræknar eðlur teljist undantekning í kirkjustarfinu og fól hann lögreglu lausn málsins. „Einhver hefur nýtt sér það að kirkjan stendur opin og losað sig við hana með þessum hætti," segir séra Patrick. „Það er leiðinlegt veður og eigandinn hefur ekki haft brjóst í sér til að skilja hana eftir á víðavangi." Það var Ómar F. Dabney, meindýraeyðir hjá Reykjavíkurborg, sem svaraði kalli lögreglu og sótti eðluna. „Þetta er með stærri eðlum sem ég hef séð, en hef þó séð þær margar. Þetta eru vinsæl gæludýr þó að það sé ólöglegt að halda þessi dýr hér á landi. Mér skilst að lögregla finni oft dýr sem þessi þegar farið er í húsleitir og annað slíkt. Ég er löngu hættur að kippa mér upp við það að meðhöndla slöngur, eðlur og stórar köngulær," segir Ómar. - shá
Mest lesið Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Gróður farinn að grænka fyrir norðan Innlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Fleiri fréttir „Rúllandi rafmangsleysi“ alla daga og tífaldur þungi í árásum „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Sjá meira