Lífið

Allt farið til fjandans í Verzló

Verzlunarskóli Íslands setur upp söngleikinn Drauminn í ár en hann er byggður á leikriti Shakespeare um Draum á Jónsmessunótt. Tónlistarþema í söngleiknum er 90's tónlist. Leikstjóri og höfundur er Orri Huginn Ágústsson og Stella Rósenkranz er danshöfundur sýningarinnar.

Strákarnir í StopWaitGo sjá svo um tónlistana, en þeir hafa unnið með tónlistarmönnum á borð við Friðrik Dór og Haffa Haff.

Í meðfylgjandi myndskeiði er hægt að horfa á titillag sýningarinnar, Farið er allt til fjandans.

Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á Facebook-síðu sýningarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.