Tómas leikur pólskan vísindamann 9. apríl 2011 15:00 Tómas Lemarquis fer með hlutverk pólsks vísindamanns í nýrri kvikmynd sem framleidd er í Þýskalandi.Fréttablaðið/arnþór
Leikarinn Tómas Lemarquis fer með stórt hlutverk í kvikmyndinni The Errors of the Human Body sem framleidd er í Þýskalandi. Tómas leikur þar pólskan vísindamann en tökur fóru að mestu fram í Max Planck stofnuninni, sem er ein stærsta vísindastofnun Evrópu. Kvikmyndin er í leikstjórn Ástralans Erons Sheean og með aðalhlutverk fara Rik Mayall, sem lék í The Young Ones og The Black Adder, og hin þýska Karoline Herfurth, sem fór með hlutverk í myndunum Ilmurinn og Lesarinn. Umboðsmaður Tómasar í Berlín kom honum í samband við leikstjórann, sem hafði þá séð kvikmyndina Nóa Albinóa og óskaði eftir Tómasi í hlutverk vísindamannsins. „Þetta var skemmtilegt verkefni og það var mikill heiður að fá að leika á móti Rik og Karoline. Hún er rísandi stjarna hér í Þýskalandi og Rik er goðsögn innan bresku grínsenunnar," segir Tómas og bætir við að Rik sé mjög skemmtilegur og gamansamur náungi.Karoline Herfurth er rísandi stjarna í Þýskalandi og lék meðal annars í hinni vinsælu kvikmynd Lesarinn.nordicphotos/gettyÖll samtöl í kvikmyndinni fara fram á ensku og því þurfti Tómas að leggjast í nokkra rannsóknarvinnu þar sem persóna hans talar ensku með pólskum hreim. „Ég hafði samband við fjölda Pólverja hér í Berlín og fékk að hlusta á þá tala og tók einnig upp á segulband. Það búa margir Pólverjar í borginni enda er ekki nema um tveggja tíma lestarferð héðan til Póllands. Þeir voru mjög hjálpsamir við undirbúninginn en ég veit ekki hvort mér muni takast að blekkja þá í þessu hlutverki. Ég vona þó að ég nái að blekkja alla aðra," segir Tómas og hlær. Búið er að selja dreifingarrétt kvikmyndarinnar bæði í Þýskalandi og Ástralíu og verður gaman að sjá hvort hún ratar hingað til lands.- sm
Mest lesið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira