Tímamót í aðgangi að rannsóknagögnum 7. nóvember 2011 06:00 Ólafur Þ. Harðarson opnaði formlega gagnagrunn þar sem má finna upplýsingar um stjórnmálaviðhorf Íslendinga frá 1983. Fréttablaðið/VAlli
Gögn og upplýsingar úr Íslensku kosningarannsókninni, yfirgripsmikilli rannsókn á kosninga- og stjórnmálahegðun Íslendinga allt frá alþingiskosningunum árið 1983, eru nú aðgengilegar á vef Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands (HÍ) www.fel.hi.is. Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði og forseti félagsvísindasviðs HÍ, opnaði formlega fyrir almennan aðgang að gögnunum á hádegisfundi á föstudag, en hann er helsti frumkvöðullinn bak við þessar kannanir. Upplýsingarnar eru byggðar á svörum almennings við spurningalistum sem hafa verið lagðir fyrir Íslendinga á kosningaaldri í tengslum við alþingiskosningar og er þar spurt um afstöðu til stjórnmálaflokka og málefna tengdum stjórnmálum. Félagsvísindastofnun hefur séð um framkvæmd könnunarinnar frá kosningunum 1987. Sem stendur eru gögn aðgengileg frá fimm af átta kosningum sem eru innan þessa tíma. Gögn frá kosningunum 1983 og 1987 eru enn ekki komin á rafrænt form og gögn úr síðustu rannsókn, árið 2009, verða ekki gerð aðgengileg fyrr en eftir næstu rannsókn. Við þetta tækifæri sagði Ólafur að mörg rök væru fyrir því að gera umrædd gögn aðgengileg. Meðal annars það sem kallast „frelsun gagna“ en einnig hefur þróun á alþjóðavettvangi verið með þeim hætti að slíkir gagnagrunnar eru að verða sífellt mikilvægari tæki í rannsóknum á sviði félagsvísinda. Auk þess sagði Ólafur að þar sem flestar þessar rannsóknir væru unnar á kostnað skattborgara væri það sjálfsögð tillitsemi að þau væru öllum aðgengileg. Í samtali við Fréttablaðið sagði Ólafur að opnun gagnagrunnsins væri mikill áfangi fyrir rannsóknastarf hér á landi. Mikilvægt væri að geta borið saman niðurstöður bæði í tíma og rúmi. „Ég er gríðarlega ánægður með að hafa komið þessu fram þó ég hefði gjarna viljað vera búinn að þessu fyrr. Það er hins vegar dýrt að koma gögnum á aðgengilegt form.“ Ólafur segir sérstaklega ánægjulegt að sjá hvernig aðrir fræðimenn vinna með gögnin og vonast til þess að sem flestir nýti sér þau. Þó safnið sé fyrst og fremst hugsað með þarfir fræðimanna og háskólanema að sjónarmiði, getur almenningur einnig nýtt sér upplýsingarnar sem þar er að finna. „Þetta er hugsað fyrir alla sem hafa burði til að reikna og þekkja nauðsynleg forrit,“ segir Ólafur. „Ef fólk kann að vinna með gögn í Excel eða SPSS getur það nýtt sér upplýsingarnar.“ thorgils@frettabladid.is
Mest lesið Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Innlent Agnes var meira en bara morðingi Innlent Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Erlent Reyndist ekki vera hópuppsögn Innlent Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Innlent Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Innlent Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Innlent Fleiri fréttir Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Krefjandi sjúkraflug milli Íslands og Grænlands Ráðherra undir þrýstingi, eldsneytismarkaðurinn til skoðunar og pottum lokað Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Vill að ríkið taki við sölu vímuefna Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Heilsustofnunin í Hveragerði fær langtímasamning Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Reyndist ekki vera hópuppsögn Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Tugir vilja feta í fótspor Fannars Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Ein hópuppsögn í júní Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár Sjá meira