Innlent

Bræla hamlar loðnuveiðum

Enginn friður er til loðnuveiða sökum brælu og hafíss. fréttablaðið/óskar
Enginn friður er til loðnuveiða sökum brælu og hafíss. fréttablaðið/óskar
Loðnuveiðar hafa legið niðri undanfarna daga vegna mjög erfiðs tíðarfars og hafíss á Grænlandssundi, segir á heimasíðu HB Granda. Svo virðist sem stóra loðnan haldi sig á þessum slóðum en lítið hefur orðið vart við annað en smáloðnu á hafsvæðinu úti fyrir Norðurlandi.

Að sögn Vilhjálms Vilhjálmssonar, deildarstjóra uppsjávarsviðs HB Granda, hefur verið svo til látlaus norðan- og norðaustanbræla í Grænlandssundi. - shá




Fleiri fréttir

Sjá meira


×